Lífið

Skopmyndasamkeppni um Eggert Magnússon

Segist taka umfjöllun breskra fjölmiðla nokkuð létt en ágangur þeirra hafi komið sér á óvart.
Segist taka umfjöllun breskra fjölmiðla nokkuð létt en ágangur þeirra hafi komið sér á óvart.

„Ég missi ekki svefn yfir þessu og tek þessu mjög létt," segir Eggert Magnússon, stjórnarformaður enska úrvalsdeildarliðsins West Ham, en hann hefur fengið að upplifa svartan húmor bresku pressunnar af eigin raun.

Íþróttavefur The Guardian efnir meðal annars til skopmyndasamkeppni þar sem Eggert verður í aðalhlutverki en hann kemur á eftir Mike Newell, knattspyrnustjóra Luton, sem kom sér á forsíður blaðanna fyrir niðrandi ummæli um konur. Það ætti að verða forvitnilegt að sjá hvaða augum gamansamir Bretar líta stjórnarformanninn.

Eggert hefur verið uppnefndur Kex-baróninn vegna gamalla tengsla við kexverksmiðjuna Frón og sagðist eitt af götublöðum Lundúna ætla að gefa stuðningsmönnum West Ham kex fyrir fyrsta leik liðsins eftir að Eggert tók við formennsku. Þá hafa önnur blöð látið þýða hluta úr stuðningsmannatextum West Ham. Eggert segist hafa séð þessar fréttir en minna hafi borið á því að þær yrðu að raunveruleika. „Ég verð bara að lifa með þessu en þetta fer kannski að verða óþægilegt því bæði Pétur og Páll eru farnir að stoppa mig úti á götu og vilja ræða málin," útskýrir Eggert sem segir að þessi mikli ágangur fjölmiðla hafi komið honum svolítið spánskt fyrir sjónir.

„Fótboltinn er hins vegar kapítuli út af fyrir sig hérna og snertir tilfinningar á öðruvísi hátt en annars staðar," segir Eggert sem býst síður við að því fari að ljúka. „Þetta er bara svona í kringum knattspyrnuna á Bretlandi og ég verð að taka þessu eins og hverju öðru hundsbiti."-






Fleiri fréttir

Sjá meira


×